Þjónusta
Forvarnahúsið sérhæfir í sig í vinnu með fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum til þess að fækka slysum og tjónum.
Áhættumat
Heilstæð úttekt á húsnæði, umhverfi og allri starfssemi fyrirtækis, sveitarfélags eða stofnunar. Lögð er áhersla á að tillögur til úrbóta henti hverjum og einum viðskiptavini og að öflug eftirfylgni tryggi árangur. Forvarnahúsið hefur einnig góða reynslu af gerð öryggishandbóka og innleiðslu þeirra.
Vinnulýsingar og öryggisferlar
Notkun persónuhlífa, móttaka nýrra starfsmanna, eyðublöð fyrir slysaskráningar, gátlistar, öryggisleiðbeiningar, o.fl.
Umferðaröryggi
Greining á umferð og akstri starfsmanna með þeim tilgangi að fækka tjónum.
Neyðaráætlanir
Sérsniðin neyðaráætlun, s.s. brunaáætlun, flóttaleiðir eða viðbrögð vegna slyss.
Námskeið um öryggismál
Forvarnahúsið býður upp á námskeið um akstur fyrir fyrirtæki, vinnuskóla og atvinnubílstjóra, slysavarnir á vinnustaði auk fræðslu um öryggi á heimilum fyrir starfsmenn.