Um Forvarnahúsið

Um Forvarnahúsið Forvarnahúsið er öflugt þekkingarsetur um umferðaröryggi og slysa- og tjónavarnir. Eitt helsta hlutverk Forvarnahússins er að miðla upplýsingum og fræða almenning um slysavarnir.

Starfsmenn Forvarnahússins starfa með fyrirtækjum, félagasamtökum og opinberum aðilum að eflingu og samhæfingu slysavarna.

Heilt hús, tileinkað forvörnum

Forvarnahúsið er fræðslumiðstöð þar sem gestir fá meðvitund um þau lífsgæði sem felast í forvörnum á ýmsum sviðum. Í Forvarnahúsinu getur fólk prófað hvernig er að lenda í árekstri á 6 kílómetra hraða og hvernig það er að vera inni í bíl sem veltur.

Í Forvarnahúsinu er margvíslegur búnaður sem tengist forvörnum á heimilum og í fyrirtækjum. Meðal annars hefur verið sett upp öruggt heimili, í samstarfi við IKEA, þar sem gestir geta komið og skoðað hvernig best er að haga öryggismálum á heimilum eldri borgara og barnafólks.


Staðsetning

Forvarnarhúsið er staðsett í Kringlunni 1-3, þar sem áður var prentsmiðja Morgunblaðsins. Inngangurinn í Forvarnahúsið snýr að Kringlunni, en Háskólinn í Reykjavík deilir húsnæði með Forvarnahúsinu.


Námskeið og kynningar

Í Forvarnahúsinu eru haldin námskeið og kynningar fyrir ökunema, grunnskólanemendur, fyrirtæki, aldraða og foreldra. Mörg fyrirtæki sýna forvörnum vaxandi áhuga og Forvarnahúsið er vettvangur ýmissa fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka í forvörnum. 

Hluti af innviðum hússins er færanlegur sem opnar þann möguleika að fara með starfsemi Forvarnahússins hvert á land sem er. Lögð er sérstök áhersla á góð tengsl við landsbyggðina þannig að sem flestir landsmenn geti nýtt sér þá þjónustu sem er í boði.


Forvarnir sjálfsagður þáttur í rekstri fyrirtækja

Viðhorf til forvarnastarfsemi hefur breyst mikið á undanförnum árum. Mörg fyrirtæki líta orðið á forvarnir sem eðlilegan þátt í starfsemi sinni. Þá er aukinn áhugi hjá almenningi fyrir forvörnum.



Skipta um leturstærð






Leita á vefnum