Slysavarnir 0-5 ára
Flest slys á börnum yngri en 5 ára verða inná heimilinu. Öruggt umhverfi og eftirlit foreldra dregur mjög úr líkum á slysum fyrstu æviárin.
Til þess að fyrirbyggja alvarleg slys þurfa foreldrar og aðrir sem sinna börnum að þekkja tengsl slysa við líkamlegan, andlegan og tilfinningalegan þroska barna á hverju aldurskeiði fyrir sig. Börn hafa ekki þroska til að meta og takast á við hættur í umhverfi sínu fyrr en við 10-12 ára aldur.