Innbrotum í bíla fjölgar mikiđ milli ára
Tíđni innbrota í bíla hefur nćrri tvöfaldast milli ára samkvćmt tjónaskýrslum Sjóvá. Allt áriđ 2008 var Sjóvá tilkynnt um 119 innbrot međ tjón ađ verđmćti 9.421.388 krónur. Ţađ sem af er af 2009 (til 29. júlí) hefur veriđ tilkynnt um 111 innbrot og tjón ađ verđmćti 9.435.695 krónur.*
(*Tölur byggjast einungis á tjónaskýrslum Sjóvá. Áćtla má ađ innbrot og tjón séu allt ađ ţrefalt hćrri fyrir allt landiđ.)
Ţjófar brjótast inn í bíla allstađar, jafnvel í innkeyrslum og bílageymslum. Ástćđa er ađ minnast sérstaklega á bílastćđiđ viđ Esjuna og önnur útivistarsvćđi ţví ţar geymir fólk oft verđmćti sín í bílnum til ađ hafa sem minnst á sér. Einnig hefur ţekkst ađ ţjófar fari í bíla viđ kirkjur til ađ ná í skírnar- og brúđargjafir.
Oft tekur ekki meira en 10 sekúndur fyrir ţjóf ađ stela einhverju úr bíl. Samt er hćgt ađ koma í veg fyrir flest innbrot í bíla.
Forvarnahúsiđ vill minna bílaeigendur á eftirfarandi ráđ:
- Ekki skilja neitt eftir í bílnum. Jafnvel gömul kápa eđa tómur plast poki gćti freistađ ţjófs.
- Lćsiđ alltaf bílnum og lokiđ öllum gluggum og sóllúgunni.
- Kveikiđ á ţjófavörninni ef hún er í bílnum.
- Aldrei skilja lyklana eftir í bílnum.
- Farđu aldrei frá bílnum međ hann í gangi – ekki einu sinni í innkeyrslunni.
- Legđu bílnum á öruggum stađ, helst ţar sem er mikil lýsing og umferđ.
- Ekki merkja bílinn međ límmiđum um hljómflutningsgrćjur eđa önnur tćki í bílnum.
# # #
Nánari upplýsingar gefur Herdís L. Storgaard, forstöđumađur Forvarnahússins, í síma 844 2029 eđa herdis@forvarnahusid.is.
Forvarnahúsiđ er miđstöđ slysavarna á Íslandi og vinnur ađ ţví ađ efla og samrćma forvarnir í landinu međ ađal áherslu á slysavarnir. Forvarnahúsiđ er öflugt ţekkingarsetur um slysavarnir. Starfsmenn Forvarnahússins starfa međ fyrirtćkjum, félagssamtökum og opinberum ađilum ađ eflingu og samhćfingu slysavarna.
Herdís Storgaard er hjúkrunarfrćđingur og kennari ađ mennt. Hún hefur stjórnađ barnaslysavarnaverkefnum á Íslandi í 18 ár og stýrir einnig tilraunaverkefni í slysavörnum aldrađa fyrir Reykjavíkurborg.
Til baka