Ísland međ hćstu einkunn í slysavörnum barna
Í nýlegri skýrslu frá European Child Safety Alliance (evrópskur stýrihópur um slysavarnir barna) fćr Ísland hćstu einkunn (48,5 stig) fyrir frammistöđu í barnaslysavörnum.
Einkunnin byggist á árangri og stöđumati verkefna í hverju landi fyrir sig, en alls tóku 24 EES ríki ţátt í könnunni.
Jafnframt er yfirlit yfir tíđni dauđaslysa á börnum í ţessum löndum. Ísland er ekki á listanum en ţađ er sérstaklega tekiđ fram ađ ţađ sé sökum ţess hve fámennt landiđ er. Holland er međ lćgstu dauđaslysatíđni barna eđa 5,8 dauđaslys á hvern 100.000 íbúa. Lettland er međ hćstu tíđnina, eđa 22,4 dauđaslys á hvern 100.000 íbúa.
Ef tölur Hagstofu Íslands eru skođađar, ţá er dauđaslysatíđni barna hér á landi 5,1 á hvern 100 íbúa – ein sú lćgsta í EES ríkjunum.
„Ţetta getur talist stórkostlegur árangur á margra ára skipulögđu barnaslysavarna verkefni sem hófst áriđ 1991,“ segir Herdís Storgaard, forstöđumađur Forvarnahússins sem í dag sinnir verkefni um slysavarnir barna. „Sérstaklega ber ađ nefna ţann mikla árangur sem náđst hefur í ađ fyrirbyggja drukknanir barna hér á landi.“
# # #
Nánari upplýsingar gefur Herdís L. Storgaard, forstöđumađur Forvarnahússins, í síma 844 2029 eđa herdis@forvarnahusid.is.
Forvarnahúsiđ er miđstöđ slysavarna á Íslandi og vinnur ađ ţví ađ efla og samrćma forvarnir í landinu međ ađal áherslu á slysavarnir. Forvarnahúsiđ er öflugt ţekkingarsetur um slysavarnir. Starfsmenn Forvarnahússins starfa međ fyrirtćkjum, félagssamtökum og opinberum ađilum ađ eflingu og samhćfingu slysavarna.
Herdís Storgaard er hjúkrunarfrćđingur og kennari ađ mennt. Hún hefur stjórnađ barnaslysavarnaverkefnum á Íslandi í 18 ár og stýrir einnig tilraunaverkefni í slysavörnum aldrađa fyrir Reykjavíkurborg.
European Child Safety Alliance er evrópskur stýrihópur um slysavarnir barna. Forvarnahúsiđ á fulltrúa í stýrihópnum. (www.childsafetyeurope.org)
Til baka